Smárennibekkur C31
SMTCL · Kína

Smárennibekkur C31

Vandaður smárennibekkur sem tekur lítið pláss, 357 kg að þyngd. SKF-legur auka endingu og nákvæmni, og reimdrifið er hljóðlátt með sex hraðastillingum frá 150 upp í 2000 sn/mín eftir stöðu reimarinnar. Aðalspindill og skrúfa ganga í báðar áttir svo renna má bæði hægri- og vinstrigengi, með sjálfvirkri lang- og þverfærslu. Tvöfaldar V-laga hertar rennibrautir tryggja stöðugleika og mikla nákvæmni. Uppfyllir CE-öryggisstaðal: hlífar yfir gírkassa og spindil með straumrofa gera notkun og viðhald öruggara. Sveifluþvermál 300 mm og 750 mm milli odda. Hentar skólum, nýsköpunar- og rannsóknarsetrum, sem og heimasmíði, módelsmíði og úrsmíði.

Sendu fyrirspurn og við svörum með verði og afhendingartíma.

Smárennibekkur C31